Næstu hugleiðslunámskeið

Hugleiðslustundir á 50 ára afmæli:

Vikuna 15.-21. júlí bjóðum við upp á opnar hugleiðslustundir á hverju kvöldi kl.20 í húsakynnum okkar að Ármúla 22. Allir eru velkomnir.

Það sem þú ættir að vita: 

  • Allt sem við bjóðum upp á á heimasíðunni og öll námskeið okkar eru ókeypis. Okkur finnst það forréttindi að fá að deila hugleiðslureynslu okkar með ykkar og það eru meiri en nóg laun.
  • Nálgun okkar á hugleiðslu er ekki trúarleg, heldur andleg; markmið hennar er að gefa þér tækifæri til að uppgötva þitt innra sjálf. 
  • Til að skrá sig á næsta námskeið eða til að fá meiri upplýsingar, hafið samband í s.697-3974 (eða 551-8080 á vinnutíma) eða skiljið eftir nafn og síma hér að neðan og við höfum samband við ykkur.

Hafðu samband

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
    Við getum sent þér skilaboð ef eitthvað er á döfinni næsta árið (í mesta lagi 6-7 skilaboð) • We can send you a text anytime something comes up in the next year (max 6-7 events)

Hver erum við?

Sri Chinmoy miðstöðin stendur fyrir opnum og ókeypis hugleiðslunámskeiðum, sem hafa kynnt grundvallaratriði hugleiðslu fyrir þúsundum Íslendinga. Við skipuleggjum einnig tónleika og aðra menningarviðburði.

Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi telst formlega stofnuð 21.júlí 1974, en þá hélt Sri Chinmoy fyrirlestur um hugleiðslu og andlegt líf í Háskóla Íslands. Þetta sama ár hóf hópur fólks að hugleiða saman sem Sri Chinmoy miðstöð Íslands.

Um okkur


Hvar erum við?

Sri Chinmoy miðstöðin er staðsett í Ármúla 22, 2.hæð, fyrir ofan EG skrifstofuhúsgögn. Inngangur er frá hlið. Hér fara fram öll okkar hugleiðslunámskeið, nema annað sé tekið fram.