Um okkur

Sri Chinmoy miðstöðin er félagsskapur fólks sem iðkar hugleiðslu og andlegt líf sem byggir á heimspeki Sri Chinmoy. Slíkar miðstöðvar eru starfræktar um allan heim.

Sri Chinmoy á Íslandi, 1974

Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi telst formlega stofnuð 21.júlí 1974, en þá hélt Sri Chinmoy fyrirlestur um hugleiðslu og andlegt líf í Háskóla Íslands. Þetta sama ár hóf hópur fólks að hugleiða saman sem Sri Chinmoy miðstöð Íslands.

Sri Chinmoy miðstöðin stendur fyrir opnum og ókeypis hugleiðslunámskeiðum, sem hafa kynnt grundvallaratriði hugleiðslu fyrir þúsundum Íslendinga. Við skipuleggjum einnig tónleika og aðra menningarviðburði.

Upplýsingar um næsta viðburða


Kynnist fólkinu sem stendur að hugleiðsluviðburðunum

Allir leiðbeinendur á námskeiðunum hafa lært hugleiðslu af Sri Chinmoy.

Suren

Suren varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Sri Chinmoy á barnsaldri og hefur hugleitt reglulega frá unglingsárunum. Suren varð Skákmeistari Reykjavíkur árið 1996, aðeins 17 ára gamall og fann þá hvernig hugleiðsluiðkun ýtti undir einbeitingu og innsæi og betri ákvarðanatöku.

Suren vinnur á Kaffihúsinu Garðinum (sem Sri Chinmoy gaf nafnið Ecstasy’s Heart-Garden), en það er grænmetisveitingastaður og kaffihús sem rekið er af félögum í Sri Chinmoy setrinu.

Laufey og Chahida

Chahida-og-Laufey Chahida og Laufey flytja tónlist eftir Sri Chinmoy og spila undir og leiða möntrur á námskeiðunum. Chahida, sem upphaflega er frá Austurríki, dvaldi eitt ár á íslenskum bóndabæ á unglingsárunum og lærði þá íslensku. Hún flutti svo til Íslands fyrir nokkrum árum og vinnur nú á Kaffihúsinu Garðinum. Laufey er tónlistarkennari og starfsmaður í hljóðfærabúðinni Sangitamiya. Laufey hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, en áhugi hennar beinist nú í síauknum mæli að því hvernig nota megi tónlist sem inngang að hugleiðslu og andlegri upplifun.

Nirbhasa

Nirbhasa er Íri sem búsettur er í Reykjavík. Hann er mikill hlaupagarpur og hefur hlaupið fjölda ofurmaraþonhlaupa, þar á meðal 3100 mílna hlaup (um 5000 km) sem haldið er ár hvert í New York og tekur um 50 daga að klára.

Á hlaupum sínum uppgötvaði Nirbhasa hvernig nota mætti hugleiðslu til að öðlast ótæmandi orku, en það er eitt af umræðuefnunum sem hann fer yfir á námskeiðunum.


Um Sri Chinmoy

Sri Chinmoy fæddist árið 1931. Árið 1944, eftir að foreldrar hans féllu frá, gekk Chinmoy, þá tólf ára gamall, í Ashram Sri Aurobindos sem er andlegt samfélag  í Pondicherry á Suður Indlandi. Þar dvaldi hann næstu tuttugu árin við andlega iðkun svo sem langar hugleiðslustundir, íþróttaæfingar, ljóðagerð og skriftir auk þess að semja trúarleg sönglög.

Á unglingsárum sínum öðlaðist Sri Chinmoy djúpar innri upplifanir og á árunum sem eftir fóru efldist hugleiðsla hans til æðri stiga. Árið 1964 fékk hann innri skilaboð um að flytja til New York í þeim tilgangi að deila sínum innri auð með einlægum leitendum á Vesturlöndum.

Myndband: Sri Chinmoy á Íslandi

Sri Chinmoy álítur að þráin eftir hinum andega veruleika sé fólgin í stanslausri þrá hjartans og er innra aflið á bak við alla framþróun trúarbragða, menningar, íþrótta og vísinda.

Með því að dvelja í hjartanu og sækjast stöðugt eftir að komast á æðra vitundarstig, geta konur og menn dregið fram það besta sem í þeim býr og fundið leiðina að ánægjuríku lífi, eða, eins og hann orðar það:

Takmark okkar er að fara úr birtu í meiri birtu til þess bjartasta, frá hæð til hærri hæða í hæstu hæðir, og meira að segja í hæstu hæðum er þróun okkar án enda , því sjálfur Guð er innra með okkur öllum og Guð er hvert einasta augnablik að fara fram úr sínum eigin veruleika.

Sri Chinmoy þjónaði og þjónar enn nemendum frá yfir 70 löndum sem andlegur leiðbeinandi. Hann hvatti til jafnvægis í lífsvenjum, sem fela í sér iðkun bæna og hugleiðslu sem og atorku nútíma lífsmáta.

Líf Sri Chinmoys einkenndist af ótæmandi sköpunargáfu og gífurlegum afköstum á sviði tónlistar, ljóðagerðar, mynlistar, bókmennta og íþrótta. Framlag hans til allra þessara greina vakti víða mikla eftirtekt.

Hann ferðaðist reglubundið vítt og breitt um heiminn til að halda tónleika fyrir almenning án endurgjalds, flytja fyrirlestra, bjóða upp á hugleiðslustundir fyrir almenning, hitta nemendur sína og ræða andleg málefni við ýmsa framámenn á alþjóðavettvangi sem og þjóðarleiðtoga. Sri Chinmoy tók aldrei gjald fyrir andlega leiðsögn sína, tónleikahald, fyrirlestra eða hugleiðslustundir fyrir almenning.

Hvers vegna hugleiðum við? Við hugleiðum af því að við erum ekki að fá frá heiminum það sem við þurfum.  Friðurinn svokallaði í daglegu lífi, er fimm mínútna grið eftir tíu tíma af áhyggjum, kvíða og vonbrigðum.

Varanlegur friður, guðlegur friður, ávinnst eingöngu gegnum hugleiðslu.  Ef við hugleiðum af einlægni snemma dags og finnum frið, þó ekki sé nema í eina mínútu, gætir áhrifa hans allan daginn.

Sri Chinmoy